AURUM EFTIR GUÐBJÖRG GERIR ÍSLENSKA SKARTGRIPI INNBLÁSNA AF ‘SENUA’S SAGA: HELLBLADE II’

Í maí mánuði afhjúpar Aurum nýtt og spennandi samstarf við Xbox. Fyrir útgáfu Senua’s Saga: Hellblade II, langþráðs einstaklingsleiks frá Xbox, þann 21. maí 2024, vann aðalhönnuður Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir náið með Xbox og Ninja Theory, við að hanna sérsniðið höfuðskart fyrir BAFTA-verðlaunahafann Melinu Juergens, sem leikur Senua.
Framhald hinnar verðlaunuðu tölvuleiks frá 2017 ‘Hellblade: Senua’s Sacrifice’, leikurinn fylgir eftir víkingakrígskonunni Senuu frá 10. öld, sem snýr aftur í grimmu ferðalagi um lífsbaráttu í gegnum goðsagnir og þjáningar víkinga á Íslandi.

Endanleg hönnun var innblásin af hugmyndinni um höfuðskart sem skapað er með efnum og tækni víkinga frá 10.öld og líkist lauslega hinu táknræna leðurhöfuðskarti sem Senua ber í leiknum. Gripurinn er gerður úr hamruðu oxíderuðu silfri, sett saman í lögum úr sjóarnarvængjum, sem vísar til goðsögulegra norrænna verndaranda; sem stríðsmenn þess tíma trúðu að væru tákn um vernd.
Forstjóri og meðstofnandi Karl Jóhann Jóhannsson bætir við:
„Okkur finnst það mikill heiður að hafa verið valin sem skartgripamerki til að búa til þennan einstaka skartgrip fyrir Senua’s Saga: Hellblade II. Sem íslenskt vörumerki sækja skartgripir okkar innblástur í íslenska náttúru og stórbrotin landslag elds og íss. Það var ánægjulegt að vinna með Ninja Theory og Xbox að því að lífga upp á hönnunina. Aðalhönnuður okkar og gullsmiður Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir bjó til sérsniðna höfuðskartgripinn með efnum sem vísa til víkingatíma á Íslandi og hrjóstrugs umhverfis þess.“
Auk þess hefur Guðbjörg skapað úrval af handgerðum hálsmenum, fíngerðum en djörfum bronshlutum, innblásnum af rún sem er í leiknum. Spennandi er að aðdáendur geta tekið þátt í alþjóðlegri gjafaleik Xbox á X (áður Twitter) og mögulega unnið sér inn hálsmen. Fyrir frekari upplýsingar um hvernig á að taka þátt, vinsamlegast heimsækið: https://www.xbox.com/promotions/sweepstakes/hellblade-II-aurum-necklace-sweepstakes
Senua’s Saga: Hellblade II verður gefin út 21. maí 2024, fyrir Xbox Series X|S, PC og Steam, og verður fáanlegur til að spila á fyrsta degi á Xbox Game Pass.

Aðdáendur geta fylgst með ferðalagi Senuu á samfélagsmiðlum:
Instagram:
@Officalninjatheory
@Xbox
X/Twitter:
@NinjaTheory
@Xbox