SAND
Í einu sandkorni má spegla allan heiminn og tengslin sem hvert smáatriði ber í sér.
Við berum ábyrgð á að sýna náttúrunni virðingu, jafnvel í minnstu einingum, því hver þeirra býr yfir möguleika til vaxtar. Perlur eiga uppruna sinn í einu sandkorni.
SAND línan inniheldur einnig Swarovski kristalperlur, fullkomnar eftirlíkingar ferskvatnsperla, settar í silfur. Þær endurspegla tímalausa fegurð og eilífð. Hver perla hefur einstakan kristalkjarna, umlukinn nýstárlegri perluhúð sem skapar slétt, silkimjúkt og rúnnað yfirborð. Það myndar fallega andstæðu við hrjúfa áferð silfursins sem minnir á sand.