GLEYM-MÉR-EI
Gleym-mér-ei skartgripalínan er hönnuð í samstarfi við Gleym-mér-ei styrktarsjóðinn, sem styður foreldra sem hafa misst barn á meðgöngu, við fæðingu eða skömmu síðar.
Línan endurspeglar táknræna merkingu blómsins - að varðveita og vernda minninguna. Formið sameinar styrk og eilífa fegurð, þar sem blöðin mynda öruggan vöggustað utan um bláan kristalstein. Hann má túlka sem loforð um líf sem aldrei varð, en á sama tíma sem áminningu um mikilvægi þess sem var og þess sem hefði getað orðið.
Himinsblái liturinn táknar einmanaleikann sem fylgir missinum, en kristallinn er einnig talinn vekja styrk og jafnvægi - gefa þeim sem bera hann kraft til að mæta lífinu og þeim áskorunum sem það felur í sér.
Gleym-mér-ei er skartgripur hannaður til minningar um öll þau börn sem lifa áfram í hjörtum þeirra sem elska þau, en fengu aldrei að lifa lífi sínu.