MORGUNGJAFIR
Morgungjöf er gjöf sem hefð er fyrir að gefa maka daginn eftir brúðkaupið. Algengast er að hún sé afhent morguninn eftir, en einnig má færa hana fyrir athöfnina, til dæmis ef þú vilt að makinn beri hana á brúðkaupsdaginn.
Morgungjöfin táknar eilífð hjónabandsins og fátt endurspeglar það betur en tímalausir skartgripir.