ALVÖR
Geometrísk form, opin mynstur – bæði skörp og mjúk. Þetta lýsir ALVÖR best. Hugmyndin að ALVÖR er sprottin úr uppruna Íslendinga. Í Bolungarvík stendur endurnýjuð verbúð frá árabátaöld. Form fjallsins og hússins enduróma hvort annað í landslaginu og minna á mikilvægi tengingar mannlífs og hefða.