ERIKA
Erika var hönnuð í tilefni 20 ára afmælis Aurum og fangar anda uppruna merkisins.
Ímyndaðu þér lautarferð í íslenskri sveit. Ung stúlka heillast af fíngerðum blómum, tínir þau handa móður sinni og skráir í dagbók ævintýri um vonir sínar og drauma.
Tuttugu árum síðar sækir Guðbjörg innblástur í þessar óafmáanlegu minningar þegar hún skapar hina einstöku Erika línu.