RÁN
Mjúk form, skarpar línur, ljós og skuggi leiða okkur að Rán, norrænni gyðju hafsins, í sínu náttúrulega umhverfi, innblæstri nýjustu Aurum línunnar.
Sögur herma að Rán hafi dregið skipbrotsmenn til sín, annast þá og veitt þeim nýtt líf. Hún minnir á eilífa hringrás náttúrunnar sem bæði gefur og tekur.